Nýsköpun og fljúgandi landvarsla *** Aprílgabb uppfært****
Okkar kæri landvörður Pawel prufukeyrði græjuna í morgun og var ánægður með útkomuna. Nú gefst þér tækifæri að prófa að vera fljúgandi landvörður með því að mæta upp á Hak klukkan 12:20 í dag.
Þingvellir
***Uppfært - aprílgabb***
Það hefur vafalaust ekki komið mörgum á óvart að um aprílgabb var að ræða. Hugmyndin er vissulega mjög spennandi og ánægjulegt að hugað var að starfsmannaöryggi með hjálminum góða.
Ekkert verður því af fyrirhuguðum drónalandverði
---
Nýir tímar og áskoranir kalla á nýsköpun lausna. Framþróun tækninnar, ekki síst í drónamálum, hefur gefið okkur ný tækifæri til að takast á við gestastraum í þjóðgarðinn á Þingvöllum.
Hér á Þingvöllum höfum við í gegnum tíðina reynt að huga að öryggi og eftirliti eins vel og hægt er. Helsta birtingarmynd þess hefur verið góð mönnun landvarða vítt og breytt um þjóðgarðinn, markviss stýring á göngustígum og myndavélar á vel völdum stöðum.
Góð mönnun kallar þó á hreyfanleika starfsfólks og þá helst í anda grænna lausna og skrefa. Við erum umhverfisvæn stofnun og viljum gera okkar besta til að vinna gegn loftslagsvánni og í anda líffræðilegs fjölbreytileika. Hvernig fer þetta saman ásamt snöggu viðbragði landvarða til að svara fyrirspurnum, koma með ábendingar til gesta og bregðast við þegar vá ber að dyrum?
Nú gefst einstakt tækifæri til að brjóta upp sjálfutökur á óæskilegum stöðum í þjóðgarðinum.
Lausnin er komin og í dag kynnum við því nýjustu viðbótina við starfsemi þjóðgarðsins og það er dróna-landvörðurinn. Þjóðgarðurinn hefur með góðum stuðningi nýsköpunarráðuneytisins og annara nýsköpunaraðila fengið í hendurnar dróna sem ber landvörð á milli staða. Lausnin er ekki ósvipuð viðbragðsdrónum lögreglunnar sem eru komnir núna víða um land nema þeir eru allir ómannaðir.
Þingvalladróninn mun bera landvörðinn sjálfan milli svæða á Þingvöllum hratt og örugglega. Með þessu mun landvörðurinn geta kallað ábendingar, frætt gesti og gefið leiðbeiningar meðan hann vomir yfir gestum garðsins. Þessi nýja lausn mun geta gefið okkur nú tækifæri í eftirliti með hegðun og atferli gesta Þingvalla.
Nýji ferðamátinn er umhverfisvænn, hraður og öruggur. Mun hann gefa okkur gott tækfæri að ná enn betri yfirsýn yfir verkefnið sem er verndun þjóðgarðsins.
Gestum og gangandi verður boðið upp á flug með nýja drónanum í dag frá gestastofunni Haki klukkan 12:20. Munu gestir geta þar leikið sér að því að vera fljúgandi landvörður í smá stund.
Gestum þjóðgarðsins brá heldur betur í brún þegar þeir sáu landvörðinn fljúga milli staða í morgun.
Þingvellir