Öryggisdagur í Silfru
01.06.2025
Á morgun, mánudaginn 2. Júní verður haldinn öryggisdagur í Silfru. Engar ferðir verða farnar af fyrirtækjum í gjána eftir hádegi þann dag. Sameiginlegur öryggisfundur verður haldin með starfsfólki þjóðgarðsins og starfsfólki fyrirtækjanna sem selja ferðir ofan í gjána. Sjúkraflutningamaður frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands verður á staðnum.
Bæði verður aðstaðan þjóðgarðsins í Snorrabúð nýtt sem og haldnar æfingar við Silfru. Búast má við takmörkuðu aðgengi að Silfru meðan á æfingu stendur.
Öryggisdagurinn er haldinn í samvinnu þjóðgarðsins og þeirra ferðaþjónustufyrirtækja sem selja ferðir í Silfru.

Bjart og kalt
Vatnið er kalt en upplifunin er mögnuð. Öryggisæfing á morgun 2. júní gæti haft áhrif á aðgengi ofan í Silfru.
Þingvellir