Vel heppnaður öryggisdagur
Í síðustu viku fór fram vel heppnaður öryggisdagur í Silfru. Að deginum stóðu þau fyrirtæki sem selja upplifunarferðir í köfun og yfirborðsköfun í Silfru. Þjóðgarðurinn aðstoðaði eftir mætti við skipulag og aðstöðu. Fengin var sjúkraflutningamaður frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, sem er daglega á staðnum, til að fara yfir vissa öryggis- og viðbragðsþætti.
Þáttakan var gífurlega góð og voru yfir 50 manns sem tóku þátt. Veðrið lék við þáttakendur á deginum þó kannski hafi blásið full mikið á tímabili.
Æfingin er einn hlekkur af mörgum til að tryggja öryggi gesta í þjóðgarðinum og lágmarka slys í Silfru.

Allir voru klæddir upp á réttan hátt áður en farið var að gjánni.
Þingvellir

Gerðar voru æfingar með endurlífgun og notkun hjartastuðtækis.
Þingvellir

Ein af áskorunum við að koma fólki til bjargar í Silfru er að koma þeim í land. Það er enginn hægðarleikur ef brúnirnar eru háar.
Þingvellir

Æft að koma örmagna fólki upp uppstigið við enda Silfru.
Þingvellir