Arnarfellsendi
Arnarfellsendi er nafn á norðurenda Arnarfells þar sem Hrafnagjá gengur inn í það. Fornlegt garðlag liggur frá Arnarfellsenda til suðurs meðfram endilöngu fellinu.
Arnarfellsendi í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Hallstígur (7) er syðst á Hrafnagjá, skammt fyrir norðan Arnarfellsenda (8).“