Draugaháls
Draugaháls er hugsanlegt örnefni á sunnanverðu Lágafelli. Það er iðulega merkt í hlíðum þess fyrir ofan Biskupsflöt.
Örnefnið kemur fyrst fram á korti danska herforingjaráðsins frá 1933, svo vitað sé. Kortið sjálft er önnur útgáfa af korti frá 1910 en á því er örnefnið Draugaháls hvergi að finna. Það er ekki heldur tilgreint í neinum örnefnaskrám eða ritum sem varða Þingvallasveit og því má ætla að uppruni þess sé óljós og jafnvel vafasamur, en mörg dæmi eru um misáreiðanleg örnefni á herforingjaráðskortunum hvað varðar bæði stafsetningu og staðsetningu.
Næstu kynslóðir kortagerðamanna höfðu dönsku kortin til hliðsjónar og hefur Draugabrekka verið merkt ofan á Lágafelli á flestum staðfræðikortum Þingvallasveitar síðan þá.
Heimildir
Uppdráttur Íslands. Blað 36: Botnsheiði. (1910) Generalstabens Topografiske Kort/Náttúrufræðistofnun Íslands.
Uppdráttur Íslands. Blað 36: Botnsheiði. (1933) Geodætisk Institut/Náttúrufræðistofnun Íslands.