Nautagjá

Google Maps
Ornefni Atlas Nautagja Da39

Nautagjá

Nautagjá er sprunga á botni Þingvallavatns hjá Vellankötlu.

Gjánni verður best lýst sem sprungusveimi en ekki einni samfelldri sprungu, ef miðað er við ásýnd vatnsbotnsins í dag. Ekki er ljóst hversu langt örnefnið teygðist út í vatnið en sprungurnar sjást fyrst glöggt í grynningunum fyrir utan Nes, u.þ.b. 300 metrum austan Nautatanga. Þaðan liggja þær inn eftir Vatnsviki og að Vellankötlu, þar sem ein sprungan sker sig lítillega inn í vatnsbakkann. Uppsprettuvatn kemur út úr henni. Framhald Nautagjár í norðri heitir Litlagjá.

Nautagjár er einungis getið í lýsingu Árna Magnússonar (1663–1730) af Vellankötlu en hvergi annars staðar, svo vitað sé. Nautagjá er því líklegt dæmi um örnefni sem hefur horfið úr daglegu máli hraunbúa. Sennilega hefur það gerst einhvern tímann eftir 1789, þegar hraunið milli Almannagjár og Hrafnagjár seig niður í mikilli jarðskjálftahrinu og staðhættir við vatnsbakkann gjörbreyttust.

Nautagjá í frumheimildum

Kristian Kålund textafræðingur birtir staðháttalýsingu Árna Magnússonar (1663–1730) af Vellankötlu í ritinu Bidrag til en historisk-topografisk beskrivelse af Island, sem kom út árin 1877–1882. Svo segir í íslenskri þýðingu bókarinnar eftir Harald Matthíasson, Íslenskum sögustöðum frá 1984, 1.b., bls. 110–111:

Í staðfræðiathugasemdum sínum við sama verk (eins og það stendur í eiginhandarathugasemd Árna Magnússonar Addit. 2, 8vo, miði nr. 265; Jón Ólafsson hefur í Addit. 6 fol. skeytingarlaust afritað það) tekur [Árni Magnússon] næst fram (á íslenzku): 

Vellinkatla (þannig kallast hún nú) er vík sem gengur frá Þingvallavatni beint í norður, næstum 100 faðma löng og að sama skapi breið; fyrir vestan víkina gengur tangi fram, og út af honum er nafnlaus hólmi. Innan við hólmann heitir öll víkin Vellinkatla. Í austri liggur „Hallurinn“ (þannig heitir neðri barmur Hrafnagjár) með brekkunni alveg niður á undirlendi sem liggur næst meðfram víkinni, sem er þó víðast lítt áberandi. Allt þetta svæði er skógi vaxið. Upp af botninum á Vellankötlu er óslétt, mosavaxið land, um það bil 100 faðma, og meðfram öllu þessu svæði er ströndin alsett smágrjóti með vatnsholum sem ólgar í eins og hver, en vatnið er svo kalt, að sjaldgæft er. Tanginn sem fyrr var nefndur, er alls staðar grýttur og mosavaxinn, og inn í hann skerast nokkrar smávíkur, en allvíða á ströndinni eru gjár og hraunholur með vatni, en malarbreiður á milli. Meðfram austurhliðinni er möl við ströndina, en í miðri víkinni er leirbotn. Eftir endilangri Vellankötlu, frá botni og fram í vatnið, nokkru nær vestri strönd en eystri, er djúp gjá sem heitir Nautagjá.

Heimildir

Tengd örnefni