Hrafnagjárendi

Google Maps
Ornefni Atlas Hrafnagjarendi 128D

Hrafnagjárendi

Hrafnagjárendi er nafn á nyrsta og innsta hluta Hrafnagjár, hér um bil milli Selstígs og Rauðshóls, þar sem hún verður að nokkrum slitróttum en varasömum sprungum. Frá Rauðshól kallast sprungurnar einu nafni Gapahæðagjá.

Hrafnagjárendi í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Suðaustur af Svínhólum, norðaustur af Hrafnagjárenda (65), er allstór hóll, sem Rauðhóll (66) heitir. Fyrir norðan Svínhóla kemur Hrafnagjá aftur í ljós, þó miklu sje hún minni en að sunnanverðu, og heitir nú Gaphæðagjá (67), og í Innri-Gapahæð (68) hverfur hún alveg.“

Heimildir

Tengd örnefni