Fimmtudagskvöld á Þingvöllum - – Konur og þjóðsögur á Þingvöllum

Í fimmtudagskvöldöngunni mun Dagrún Ósk Jónsdóttir aðjúnkt í Háskóla Íslands fara yfir birtingamyndir kvenna í íslenskum þjóðsögum.

Einnig mun hún flétta saman sögum sem tengjast Þingvöllum beint sem og við aðra staði á landinu.

Ganga hefst klukkan 20:00 frá gestastofunni á Haki og er öllum opin og ókeypis.

Fjölbreyttar fimmtudagsgöngur

Viðfangsefnin eru ærið fjölbreytt hjá okkur á fimmtudögum.