Fimmtudagskvöld á Þingvöllum - Klókar konur á söguöld

Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur og þjóðfræðingur segir frá kvenhetjum sögualdar og aðferðum þeirra til að hafa áhrif á eigin örlög í samfélagi karlaveldisins þar sem heiður og orðstír skiptu öllu máli.  

Kvenskörungar úr Laxdælu stíga fram, þær Guðrún Ósvífursdóttir, Bróka-Auður og Þorgerður Egilsdóttir Skallagrímssonar og stórbrotnar eddukvæðahetjur á borð við Guðrúnu Gjúkadóttur, ekkju Sigurðar Fáfnisbana, og valkyrjuna Sigurdrífu.

Á Lögbergi

Það verður líkast til áð í eða við Lögberg þegar rætt er um konur í íslendingasögunum.