Þjónustumiðstöð á Leirum
Þjónustumiðstöðin á Leirum var reist 1974 í miðjum þjóðgarðinum á Þingvöllum, skammt frá gatnamótum Þingvallavegar, Vallavegar og Uxahryggjavegar.
Kaffi- og veitingasala er í þjónustumiðstöðinni ásamt minjagripaverslun. Reksturinn er á vegum Icewear samkvæmt útboði.
Starfsfólk þjóðgarðsins á Þingvöllum veitir gestum almennar ferðaráðleggingar á upplýsingaborði við innganginn og selur leyfi fyrir gistingu á tjaldsvæðum þjóðgarðsins, stangveiði í Þingvallavatni og köfun í Silfru.