Frá fornu fari hefur fólk komið saman á Þingvöll til skrafs, ráðagerða og hafa gaman. Þó þinghald hafi hætt og síðan endurreist í Reykjavík, að tilstuðlan Jóns Sigurðssonar, þá hefur þjóðin þó komið reglulega saman hér.
Okkur fannst svo gaman í fyrra að við ætlum að endurtaka leikinn sunnudaginn 15. júní þó það sé með aðeins breyttu sniði.

Það verður aðeins annað áhorfs þegar að Una Torfadóttir og Hafsteinn Þráinsson spila við Valhöll í ár.
Velkomin til Þingvalla - Dagskrá sunnudaginn 15. júní
Skundum á Þingvöll býður upp á fjölbreytta viðburði til að njóta sunnudaginn 15. Júní. Matarvagnar verða á Valhallarsvæðinu. Hægt er að nálgast kort í pdf formi hér. Mögulegt er að greiða í bílastæði á staðnum eða á vefnum í gegnum https://www.checkit.is/is/thingvellir/thingvellir-greida
11:00 – 12:30 Söng – og söguganga
Guðni Th. Jóhannesson gengur með gesti frá Haki, niður Almannagjá, áfram að Öxarárfossi og svo ögn til baka og endar við Valhöll. Sagðar sögur og sungið á staðnum
Staðsetning – Gestastofa Hak
12:30 – 15:00 Kórasöngur við Lögberg
Kóradagskrá 15. júní við Lögberg í Almannagjá.
12:30 Karlakór Kjalnesinga
13:00 Hljómfélagið
13:30 Skólakór Smáraskóla
14:00 Kvennakór Háskóla Íslands
14:30 Seltjarnaneskór
Staðsetning – Lögberg
13:00 – 16:00 Fornleifaskóli barnanna
Fornleifaskóli barnanna verður starfandi við Valhallarsvæðið sem gefur krökkum tækifæri á að setja sig í spor fornleifafræðinga, grafa eftir hlutum og teikna upp rústir.
Staðsetning – Valhöll
16.00 – 17:00 Leikhópurinn Lotta
Leikhópurinn setur upp hið sívinsæla leikrit Hróa Hött í þeim búning sem leikhópnum er einum lagið.
Staðsetning – Valhöll
17:30 Tónleikar við Valhöll
Una Torfadóttir og Hafsteinn Þráinsson koma fram á útisviðinu við Valhöll. Hugljúfir tónar í einstöku umhverfi.
Velkomin til Þingvalla - Dagskrá þriðjudaginn 17. júní
15:00 - Hátíðarguðþjónusta í Þingvallakirkju. Séra Kristján Björnsson þjónar fyrir altari.
Ókeypis inn á sýninguna Hjarta lands og þjóðar.