Sumardagskrá Þingvalla 2026

Það verður ýmislegt á döfinni í sumar

Fell, flóra og firnindi

Í, júlí og ágúst verður boðið upp á göngur með landverði á Þingvöllum 

Göngurnar fara ýmist inn að gömlu hraunbýlunum í sigdalnum, meðfram strandlengju Þingvallavatns eða fleiri staði innan þjóðgarðs. 

Göngurnar hefjast klukkan 14:00 og eru allajafna í um 3-4 klukkustundir. Gott er að vera vel útbúin nesti og drykkjarvatni. Göngurnar sem verða auglýstar betur þegar kemur að hverri og einni eru ókeypis.

5. júlí - Fell, flóra og firnindi -  Arnarfell 
Gengið verður upp að Arnarfelli sem er ílangur móbergshryggur austarlega í þjóðgarðinum. Gangan er öllum opin og ókeypis og hefst klukkan 14:00. Gott er að mæta vel skóaður og með göngunesti.


Oft er vel mætt í göngurnar

Haustlitagangan í fyrra gekk framar vonum.

Fimmtudagskvöld á Þingvöllum

Fimmtudagskvöldin verða fróðleg í sumar sem endranær. Öll byrja þau klukkan 20:00 frá gestastofu á Haki. Viðburðirnir eru öllum opnir og ókeypis.

25. júní - Guðni Ágústsson minnist Jóns Sigurðssonar forseta og frelsishetju 
               Fyrsta fimmtudagskvöld sumarsins verður leitt af Guðna Ágústssyni fyrrverandi                   alþingismanni og ráðherra.

 

2. júlí - Rústir Alþingis 

            Gunnar Grímsson fornleifafræðingur og landvörður segir sögu alþingis út frá nokkrum fornleifum sem leynast á völlunum, gefa fólki tilfinningu fyrir rústunum og varpa ljósi á þær sem sagnabrunn og auðlind. 

 

9. júlí Þingvellir í þúsund ár

          Jón Kristjánsson höfundur bókarinnar "Þingvellir í 1000 ár" hefur lestur við                            gestastofuna á Haki.  Bjarni Harðason bóksali mun síðan leiða gesti um þingstaðinn            forna og les upp úr bók Jóns.

 

16. júlí Ísland í nýjum heimi! 

            Margrét Gunnarsdóttir ræðir gildi Alþingis og fornrar lýðveldisstjórnskipunar er                      Bandaríkin voru stofnuð

 

 

 

Fornleifaskóli barnanna

Alla sunnudaga í júlí milli 14:00 - 16:00 verður boðið upp á fornleifaskóla barnanna.

Markmið fornleifaskólans er að kynna krakkana fyrir fornleifarannsóknum og leyfa þeim að grafa eins og „alvöru fornleifafræðingar“ eða þar um bil.

Notast er við múrskeiðar til að skafa upp mold og grafa upp ýmsa „forngripi“.
Uppgraftarreitnum er svo hagað að hann líkist þingbúð sem hentar vel þar sem gestirnir verða í næsta nágrenni við helsta fornleifasvæðið.

Í lokin fá þáttakendur viðurkenningarskjal um að hafa lokið fornleifaskóla barnanna á Þingvöllum. Þáttaka er öllum opin og ókeypis.

Fornleifaskólinn er staðsettur á gamla Valhallarreitnum við bílastæðið P5. 

Hér er googlemap staðsetning
Hér er kort í pdf.
Þröng á þingi

Það er oft margt um manninn í fornleifaskóla barnanna. Svona fjöldi sést helst á hátíðisdögum en skólinn er vinsæll.