Fell, flóra og firnindi - Arnarfell - Sunnudagsganga með landverði

Arnarfell stendur stakt við norðaustanvert Þingvallavatn. Fjallið er móbergshryggur sem rís hæst í tæplega 240m hæð eða um 140m upp úr umhverfi sínu.

Ganga á fellið er ekki erfið, þótt móbergið sé sums staðar laust undir fæti. Gangan er mjög gefandi því af fellinu er gott útsýni yfir þjóðgarðinn og næsta nágrenni sem og fjallahringinn sem umlykur sigdældina. Við munum ganga eftir endilöngum hryggnum frá norðri til suðurs og njóta útsýnis á leiðinni. Þegar niður af hryggnum er komið sunnanmegin skoðum við bæjarstæðið vestan megin við Arnarfell, þar sem enn má sjá móta fyrir minjum frá þeim tíma er Arnarfellsbærinn stóð.
Við förum stuttlega yfir búskaparsögu Arnarfells þar sem hreindýr koma meðal annars við sögu. Á bakaleiðinni förum við fram hjá Stapatjörn sem er lítil tjörn í gíg Arnarfells. Við höldum svo yfir norðvesturöxl Arnarfells til baka á upphafsstað.
Áætluð gönguvegalengd er rúmir 7 km og samanlögð hækkun um 280m. Gengin er hringleið og áætlað er að hún taki um 3 tíma í heildina. Engin salernisaðstaða er við upphafsstað og þátttakendum bent á að koma við í þjónustumiðstöð þjóðgarðsins á Leirum til að nýta sér aðstöðu þar. Ekki er gert ráð fyrir nestisstoppi en gott er að hafa með sér eitthvað að drekka og orkunasl í bakpokanum sem hægt er að grípa til ef þörf krefur.

Klæðnaður eftir veðri og mælt með þokkalegum gönguskóm þar sem undirlag getur verið af ýmsu tagi.
Upphafsstaður er í krika á sveitavegi sem liggur til vesturs inn af vegi 36. Gangan hefst kl. 14:00 og er öllum opin og ókeypis.