Fimmtudagskvöld á Þingvöllum - Þingvellir í 1000 ár

Gestir í velheppnaðri fimmtudagskvöldgöngu

Þingvellir í 1000 ár

Jón Kristjánsson höfundur bókarinnar "Þingvellir í 1000 ár" hefur lestur við gestastofuna á Haki.

Bjarni Harðason bóksali mun síðan leiða gesti um þingstaðinn forna og les upp úr bók Jóns.

Af nógu er að taka á þessum forna sögustað og Jón hefur tekið saman á skemmtilegan hátt.

Gangan hefst klukkan 20:00 frá gestastofunni á Haki og er öllum opin og ókeypis