Menningararfur í mótun
Gangan hefst í Vallakróki, heldur þaðan í Skógarkot og lýkur í Þingvallakirkju.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Menningararfur í mótun
Nánast aldrei hefur verið efast um að Þingvellir séu einn helsti menningararfur íslendinga. Frá upphafi sjálfstæðisbaráttunnar hafa Þingvellir þjónað veigamiklu hlutverki við mótun þjóðernislegrar sjálfsmyndar íslendinga og þótt hluti af grundvelli sjálfstæði þjóðarinnar. Þó hafa ekki öll verið á eitt sammála um hvernig vernda skuli menningararfinn sem slíkan, né hver sá menningararfur nákvæmlega er.
Í þessari sunnudagsgöngu mun Tryggvi Jóhönnuson Thayer, landvörður og menningarmiðlari, fjalla um átök, deilur og vangaveltur sem sprottið hafa upp meðal fræðimanna, stjórnmálamanna, almennings og annara um mótun menningararfsins á Þingvöllum, en Tryggvi skilaði nýlega af sér meistarverkefni um birtingarmynd þjóðernislegrar sjálfsmyndar í skiltum þjóðgarðisins á Þingvöllum.
Gangan hefst klukkan 14:00 frá bílastæðinu í Vallakróki. Farið verður í Skógarkot og þaðan í Þingvallakirkju. Salerni er að finna nálægt upphafi og enda gönguleiðarinnar (P2/P5) og mun gangan taka um 3 klukkutíma. Búast má við rigningu svo gestir eru hvattir til að klæða sig vel eftir veðri.
Gangan er öllum opin og ókeypis.
Hótel Valhöll var færð af völlunum að suðurenda Öxarár til að rýma fyrir Alþingishátíðinni 1930.
Þjóðminjasafn Íslands
Sunnudagsgöngur landvarða
Fell, flóra og firnindi eru fræðslugöngur á íslensku með landvörðum Þingvalla sem fara fram alla sunnudaga í júlí og ágúst. Fjallað er um lífríki, plöntur og sögu og eru göngurnar öllum opnar og ókeypis.