Sungið á Þingvöllum - Laufáskórinn

Laufáskórinn

Laufáskórinn er ungur kór, stofnaður 2022.

Laufáskórinn var stofnaður í ágúst 2022 að Laufásvegi í Þingholtunum í Reykjavík, en þaðan dregur hann nafn sitt.

Kórstjóri og stofnandi er Agnes Jórunn Andrésdóttir en hún hefur lokið kórstjórnarprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar ásamt því að stunda söng- og hljóðfæranám frá unga aldri.

Laufáskórinn er fyrsti kórinn sem Agnes stofnaði og með því byrjaði ferill hennar sem kórstjóri. Haustið 2024 kom kórinn fram á tónleikum með Yo-Yo Ma ásamt fleiri kórum í Hörpu, einnig hélt kórinn eftirminnilega Hrekkjavökutónleika í Langholtskirkju í október 2024.

Nýlegustu tónleikar kórsins voru 1. maí 2026 í Hörpuhorni í samstarfi við FÍK og Hörpu. Laufáskórinn frumflytur reglulega kórverk eftir meðlimi úr kórnum. Kórinn samanstendur af söngunnendum úr ýmsum áttum sem öll eiga það sameiginlegt að njóta þess að syngja í skemmtilegum hóp. 

Efnisskrá sunnudaginn 12. júlí

Hljómi lúðrasveitirnar
Gunnar Hlynur Úlfarsson
Lysthúskvæði
Þjóðlag, úts. Emil Thoroddsen, ljóð: Eggert Ólafsson
Fararsnið
Þorkell Sigurbjörnsson, Þorgeir Sveinbjarnarson 
Gömul vísa um vorið
Gunnsteinn Ólafsson, Steinn Steinarr 
Eitt sinn
Jakob Fjólar Gunnsteinsson
Hver á sér fegra föðurland
Emil Thoroddsen, Hulda
Smávinir fagrir (úr Hulduljóðum)
Atli Heimir Sveinsson, Jónas Hallgrímsson, radds. Gunnar Gunnarsson 
Litli tónlistarmaðurinn
Freymóður Jóhannsson, úts. Skarpi 
Land míns föður
Þórarinn Guðmundsson 
Á Sprengisandi 
Sigvaldi S. Kaldalóns, Grímur Thomsen, radds. Jón Ásgeirsson 
Tákn Laufáskórsins