Fimmtudagskvöld á Þingvöllum - Jónasarganga
Ármannsfellið fagurblátt...
...og fannir Skjaldbreiðar. Fáir hafa ort jafnvel fallega um Þingvöll og skáldið Jónas Hallgrímsson.
Sagnfræðingurinn og rithöfundurinn Páll valsson tekur fyrir fræðimanninn og ljóðskáldið Jónas Hallgrímsson.
Fáir ef nokkur tengist Þingvöllum jafn vel og Jónas. Hann rannsakaði svæðið, orti um það og á endanum rötuðu líkast til einhverjar af líkamsleifum hans í þjóðargrafreit á Þingvöllum.
Viðburðurinn fefst klukkan 20:00 frá gestastofunni á Haki.
Gangan er öllum opin og ókeypis.