Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu

Ljóð og önnur verk Jónasar hafa flest á einn eða annan hátt snert okkur í gegnum tíðina. Þó nokkur þeirra koma ægifagurri og djúpri sögu Þingvalla til skila með orðum og flutningi sem erfitt er að leika eftir. Enn er notast við ljóð og hugtök Jónasar í þjóðgarðinum.

Varðveisla og notkun íslenskunnar er sífellt viðfangsefni í þjóðgarðinum á Þingvöllum.  Birtingarmynd þess hjá okkur má t.d. sjá með fjölbreyttum dagskrárviðburðum eins og fimmtudagskvöldgöngum á sumrin, viðburðum á haustin og skólamóttöku.

Þá er nýjasta viðbótin umfangsmikil söfnun og staðsetning örnefna í Þingvallahrauni sem má sjá í örnefnaskránni https://www.thingvellir.is/fraedsla/ornefni/