Frágangur hafinn eftir vel heppnaða hátíð
21.06.2026
Það gekk mikið á gær og vill þjóðgarðurinn þakka öllum gestum sem komu ásamt listamönnum, viðburðarhöldurum, gæslunni og viðbragðsaðilum. Þetta var skemmtilegur viðburður sem gekk einkar vel.
Í dag er kominn nýr dagur fullur af annríki hversdagsins á Þingvöllum. Unnið var að frágangi, ruslatínslu og þrifum í alla nótt. Áfram verður unnið að því að rýma svæðið næstu tvo daga.
Öll rútustæði er komin í notkun en einhver áhöld verða á bílastæðum eins og Fossplani (P2) fyrir einkabíla.
Við látum þetta vonandi allt ganga sem best næstu daga eins og endranær.
Mannmergð á völlunum
Fólk kom saman í blíðu á völlunum á Þingvöllum
Þingvellir
Frágangur hafinn og langt kominn
Þingvellir