Höfðingleg gjöf erfingja Valdimars Jónssonar
01.06.2026
Þingvellir
Hluti af Miðfellslandi í Þingvallasveit gefið til ríkisins og fært til þjóðgarðsins á Þingvöllum.
Í dag var ritað undir gjafaafsal milli erfingja Valdimars Jónssonar og ríkissjóðs um að gefa ríkissjóði eignarhluti fjölskyldunnar í landi Miðfells í Þingvallasveit. Þetta eru þrír eignarhlutar upp á samtals tæp 15% af landareigninni og stærsti staki eignarhlutur í Miðfelli. Lóðinni fylgja vatns- og veiðiréttindi. Markmið gjafaafsalsins er að tryggja útivistar- og náttúruverndargildi jarðarinnar.
Í heild sinni er jörðin talin vera um 2.450 hektarar að stærð og liggur að hluta upp að austasta hluta þjóðgarðsins á Þingvöllum. Undir Miðfellsjörðinni er talið að renni um einn þriðji af grunnvatni til Þingvallavatns og jörðin því mjög mikilvægur hluti af vatnasviði og vatnsforðabúri Þingvallarvatns. Af hálfu ríkisins verður umsjón og umsýsla eignarhlutarins í jörðinni færð til Þjóðgarðsins á Þingvöllum.

Erfingjarnir sem standa að gjöfinni komu saman á Þingvallabænum í dag ásamt fulltrúum forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis og Þingvallanefndar þar sem ritað var undir afsal og vitjuðu á eftir um leiði afa og ömmu sinnar hvíla í Þingvallakirkjugarði. Það var einlægur vilji þeirra að ríkið eignaðist þetta land og í dag varð það að veruleika.