Gönguskíðabraut troðin 29. desember

Gönguskíðabraut var troðin seinnipartinn 29. desember 2023. Fínasta frost er í kortunum svo leiðin ætti að halda sér næstu daga. 

Leiðin er einbreið enda býður breidd göngustíga ekki upp á annað. Einstaka skaflar eru á brautinni og gott er að fara varlega í og við gjár.
Upphafspunktur er við Vallakrók gegnt Furulundi eða við bílastæði merkt P2 neðan við Öxarárfoss. Leið liggur austur yfir Vallagjá og áfram yfir veg 361 í átt að Skógarkoti (2 km).
Þegar komið er að Skógarkoti kvíslast leiðin: 

   1. Hrauntún (3 km). Hægt er að fara norður í átt að Hrauntúni. Leiðin er um 3 km að lengd. Á einum stað er farið yfir þjóðveg 36 og gott er að hafa varann á. Þá er haldið áfram eftir brautinni að eyðibýlinu Hrauntúni.

Hér í Hrauntúni er hægt að snúa við en einnig var troðin ný leið sem liggur 2km áfram til norðurs að Sandskeiðum undir Ármannsfelli. Þaðan liggur leiðin svo 2km til austurs eftir reiðbraut sem var lögð um árið. Þar endar svo leiðin og þarf að snúa við, því snjórinn var orðinn of þunnur til frekari troðnings.


2. Tjarnir (2 km). Haldið er austur að Tjörnum sem eru rétt við norðausturhluta Þingvallavatns. Frá Tjörnum er mælt með því að fara sömu leið til baka. Ekki hafa verið troðin spor meðfram Vallavegi (361) en þó láta sumir sig hafa það og fara þá eftir bílförum sem þar eru, fram hjá Silfru og þaðan áleiðis að Vallakróki. 
Hægt er að nálgast kort hér í jpg formi. Gönguskíðabrautirnar eru blálitaðar.
Góða skemmtun.
Gönguskíðakort
Gönguskíði á spori