Neyðarkallinn keyptur

Neyðarkall keyptur af Björgunarsveitinni Ingunni
Neyðarkallinn keyptur

Á myndinni eru fulltrúar þjóðgarðsins og björgunarsveitarinnar Ingunnar með neyðarkallinn

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum hefur síðastliðin ár keypt stóru útgáfuna af neyðarkallinum frá björgunarsveitinni Ingunni á Laugarvatni. Björgunarsveitirnar eru ómetanlegur þáttur í öryggi landsmanna. Þegar vá ber að dyrum þá eru björgunarsveitirnar oft eitt fyrsta viðbragðið í uppsveitum Árnessýslu og þar með talið á Þingvöllum. Nú fer vetur brátt að ganga í garð og þá reiðir ekki síst á viðbragð sveitanna. 

Við þetta má bæta að næstkomandi sunnudag mun björgunarsveitin Ingunn nýta æfingu í sigi niður sprungur til ruslatínslu í Almannagjá. Þjóðgarðurinn styrkir á móti björgunarsveitina um sitt vinnuframlag. 

Sigið verður í Kárastaðastíg þar sem brúin tengir útsýnispallinn á Haki við stíginn niður í Almannagjá. Þarna festir rusl stundum ofan í gjánni og ekki hægðarleikur að tína það upp.