Rjúpnaveiði 2023

Rjúpuveiðitímabilið er hafið og stendur frá 20. október – 21. nóvember í ár. 

Ekki er heimilt að veiða innan marka þjóðgarðsins á Þingvöllum. Hér er kort í pdf-formi sem sýnir mörk þjóðgarðsins. Kortið er upphlaðanlegt í kortaöpp eins og Avenza. 

Starfsfólk þjóðgarðsins viðhefur eftirlit með að ekki sé veitt innan þjóðgarðs. 

Almennar reglur um tilhögun rjúpnaveiði má nálgast hér á þessum tengli

Veiðimenn: Farið að öllu með gát, njótið útiverunnar og virðið mörk þjóðgarðsins. 

Rjúpa á góðum slóðum