Umferðarstýring og lokanir vegna tónleika 20. júní
14.05.2026
Vegna fyrirhugaðra tónleika þann 20. júní næstkomandi í þjóðgarðinum á Þingvöllum vill þjóðgarðurinn koma á framfæri:
Fyrirséð er að verulegur fjöldi gesta muni sækja svæðið heim þennan dag til að upplifa tónlistarviðburðinn Bergmál. Gera má ráð fyrir allt að 20.000 manns yfir daginn og búast má við miklu álagi og umferðarþunga allan daginn á Þingvallavegi.
Til að tryggja öryggia vegfarenda mun lögregla annast umferðarstjórnun og eftirfarandi veglokanir gilda frá kl. 15:00 á öllum helstu vegum sem liggja að og í gegnum þjóðgarðinn. Lokanir verða í gildi: að vestan við Grafningsafleggjara, við Miðfell að austanverðu og norðan við Þingvelli á Uxahryggjarvegi á tímabilinu frá 15:00 til miðnættis.
Búast má við miklu álagi og umferðarþunga allan daginn á Þingvallavegi.
Búast má við miklu álagi og umferðarþunga allan daginn á Þingvallavegi.
Bílastæðið á Haki verður opið fyrir almennri umferð til 15:00. Gönguleiðir um Almannagjá verða opnar frá útsýnispalli við Hakið niður Almannagjá að Lögbergi/Drekkingarhyl. Þaðan verður hægt að ganga til austurs að Peningagjá/Flosagjá.
Ferðaþjónustuaðilar með farþega geta ýmist látið gesti sína út á Haki og beðið eftir þeim þar eða ef vilji er til sótt við Flosagjá / Peningagjá (P4). Frá bílastæðinu þar verður einstefna austur úr þjóðgarðinum á vegi 361 meðfram vatni. Athugið að einungis rútuumferð er heimil á vegi 361, en rútur geta sótt gesti sína þar. Umferð um veg 361 lokar eftir klukkan 15:00 fyrir alla umferð aðra en skutlþjónustu tónleikahaldara.
Eftirfarandi bílastæði og aðgengi verða lokuð nema fyrir tónleikagesti.
- Kastalar P2
- Valhöll P5
- Kastalar P2
- Valhöll P5
Eftirfarandi gönguleiðir verða lokaðar fyrir aðra en tónleikagesti.
- Almannagjá norður frá Lögbergi að Köstulum og í átt að Öxarárfossi.
- Almannagjá norður frá Lögbergi að Köstulum og í átt að Öxarárfossi.
Tónleikagestum verður vísað á þrjú bílastæði sem eru fyrirframpöntuð, við Brúsastaði, Tæpastíg og á Leirar tjaldstæða flatir við þjónustumiðstöð.
Tónlistarhátíðin hefst klukkan 11:00 við Valhöll en færist svo að Efri Völlum fyrir neðan Öxarárfoss eftir 14:00. Búast má við að umferð í og við þinghelgina muni þyngjast þegar líður á daginn með mögulega tilheyrandi töfum.
PDF - útgáfa af korti er hér. Athugið að kortið mun verða uppfært þegar dregur nær tónleikum.
Kort af stýringu umferðar vegna Kaleo tónleika
Hægt er að nálgast kort í PDF útgáfu hér. Athugið að kortið mun verða uppfært.
Þingvellir