Ferðaþjónustuaðilar - umferðarstýring á Þingvöllum 19. og 20 júní

Vegna fyrirhugaðra tónleika þann 20. júní næstkomandi í þjóðgarðinum á Þingvöllum vill þjóðgarðurinn koma eftirfarandi á framfæri:

Talsverður erill verður í aðdraganda tónleikanna sem getur haft áhrif á nýtingu bílastæða og göngustíga. Reynt er að takmarka slíkt eins og hægt er. 

Föstudagurinn 19. júní stýring og takmarkanir

Bílastæðið við Kastala (P2) og Fossplan verður lokað þar sem verið að er koma upp búnaði vegna tónleikanna þann 20. júní.

Ferðaþjónustuaðilar geta sleppt gestum sínum út við P1 og beðið þar eða leiðsagt gestum sínum að Flosaplani / Peningagjá (P4) og sótt þá þangað.

Almennir bílar munu geta lagt í Vallarkróki. Mælst er þó til með að nýta bílastæðið við Hak (P1) sem mest.

 

Laugardagurinn 20. júní - Stýringar á umferð

Fyrirséð er að verulegur fjöldi gesta muni sækja svæðið heim þennan dag til að upplifa tónlistarviðburðinn Bergmál. Gera má ráð fyrir allt að 20.000 manns muni sækja tónlistarviðburðinn yfir daginn. Þá munu þúsundir ferðamanna sækja Þingvelli eins og endranær. Búast má við miklu álagi og umferðarþunga allan daginn á Þingvallavegi (36).

Bílastæðið á Haki verður opið fyrir almennri umferð til 15:00. Gönguleiðir um Almannagjá verða opnar frá útsýnispalli við Hakið niður Almannagjá að Lögbergi/Drekkingarhyl. Þaðan verður hægt að ganga til austurs að Peningagjá/Flosagjá. Hægt verður að ganga að Valhöll (P5) og að Þingvallakirkju.

Ferðaþjónustuaðilar með farþega geta ýmist látið gesti sína út á Haki og beðið eftir þeim þar eða ef vilji er til sótt við Flosagjá / Peningagjá (P4). Frá bílastæðinu þar verður einstefna austur úr þjóðgarðinum á vegi 361 meðfram vatni. Athugið að einungis rútuumferð er heimil á vegi 361.

Umferð um veg 361 lokar eftir klukkan 15:00 fyrir alla umferð aðra en skutlþjónustu tónleikahaldara.
Eftirfarandi bílastæði og aðgengi verða lokuð nema fyrir viðburðarhaldara.

- Kastalar P2
- Valhöll P5

Eftirfarandi gönguleiðir verða lokaðar fyrir aðra en tónleikagesti.

 - Almannagjá frá Drekkinarhyl og norður að Þjónustumiðstöð að Köstulum og í átt að Öxarárfossi. 

Tónleikagestum verður vísað á þrjú bílastæði sem eru fyrirframpöntuð, við Brúsastaði, Tæpastíg og á Leirar tjaldstæða flatir við þjónustumiðstöð. 

Tónlistarhátíðin hefst klukkan 11:00 við Valhöll en færist svo að Efri Völlum fyrir neðan Öxarárfoss eftir 14:00. Búast má við að umferð í og við þinghelgina muni þyngjast þegar líður á daginn með mögulega tilheyrandi töfum.
PDF - útgáfa af korti er hér. Athugið að kortið mun verða uppfært þegar dregur nær tónleikum.
Kort af stýringu umferðar vegna Kaleo tónleika

Hægt er að nálgast kort í PDF útgáfu hér. Athugið að kortið mun verða uppfært.

Umferðarstýringar og lokanir eftir 15:00

Lokanir verða í gildi frá 15:00 til miðnættis: að vestan við Grafningsafleggjara, við Miðfell að austanverðu og norðan við Þingvelli á Uxahryggjarvegi á tímabilinu frá 15:00 til miðnættis.