Básgil

Básgil er gil í suðurhlíðum Ármannsfells, ofan við Bolabás – sem gilið dregur nafn sitt af – og austan við Grásteinagil. Líklegast á örnefnið við stórt og mikið gil skammt vestan Sleðaáss sem nær langleiðina upp á fjallsbrúnina. Miklir leysingafarvegir renna úr gilinu.

Básgil í frumheimildum

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá sinni um Hrauntúnsland og afrétti Þingvallahrauns sem rituð var í kringum 1980–1984:

„Norðvestan við hálsinn er all breiður hvammur sem kallast Bolabás (11). Í honum og fjallinu eru 2 gil, það eystra Básgil (12) en hitt ytra Grásteinsgil (13). Þar norðvestar kemur háls sem nær upp í fjallsbrún, Fjárhúsmúli (14).“

Heimildir

Tengd örnefni