Bolabás

Google Maps
Ornefni Atlas Bolabas D898

Bolabás

Bolabás er kjarrgróinn hvammur við sunnanverðar rætur Ármannsfells. Hann afmarkast af Fjárhúsamúla í vestri og Sleðaási í austri. Tvö gil eru í hlíðunum norðan Bolabáss: Grásteinagil og Básgil, og hefur framburður úr þeim – sem og öðrum ónefndum gildrögum í fellinu – myndað miklar sandflatir og velli þar fyrir neðan. Vestast í Bolabás, skammt frá Fjárhúsamúla, hverfur nyrsti endi Almannagjár-misgengisins inn í Ármannsfell. Hraunið þar fyrir sunnan kallast Sleðaáshraun.

Bolabás er án efa eitt þekktasta örnefnið í Þingvallasveit. Staðurinn hefur verið í alfaraleið frá upphafi Íslandsbyggðar og um hann lágu þjóðleiðir af hálendinu um svokallað Bolaklif á Sleðaási. Þar er einnig getið um örnefnið Grettishaf, þar sem Grettir hinn sterki Ásmundarson sýndi miklar aflraunir í fornöld. Frá Bolabási lágu leiðir um LeynistígÞingvöllum og gera það enn. Skógarnytjar voru lengi vel hafðar í Bolabás af Þingvallabæ og hjáleigum innan landareignar hans, síðast af bænum Svartagili.

Ætla má að Bolabás hafi verið ákjósanlegur áningarstaður margra ferðalanga gegnum tíðina en þar var einnig eitt af tjaldsvæðum þjóðgarðsins um nokkurt skeið. Þar voru kappreiðar haldnar á þar til gerðum skeiðvelli í tengslum við Alþingishátíðina á Þingvöllum 1930.

Nú er örnefnið Bolabás ábyggilega þekktast sem eitt af staðarheitum Þingvallasveitar í hinu vinsæla dægurlagi Jónasar og Jóns Múla Árnasona, Einu sinni á ágústkvöldi.

Bolabás

Horft til norðurs inn í Bolabás. Grásteinagil sést vinstra megin á myndinni. Básgil er hægra megin við miðju, klætt nokkrum snjósköflum. Sleðaás í forgrunni myndar.

Bolabás í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Norður-frá Leirum, milli gjánna, upp að Bolabás (294), heitir Sleðaásshraun (295). Það er talsvert stór blettur, dálítið skógi vaxinn, sunnan í móti, eins og með gjánum beggja vegna, en að mestu grjót og mosi. Bolabás er hvammur stór í Ármannsfelli, á milli Sleðaáss að austan og Fjárhússmúla (296) að vestan.“

„[...] svo hverfur [Almannagjá] undir Ármannsfell vestast í Bolabás.“

Matthías Þórðarson þjóðminjavörður segir svo í riti sínu Þingvöllur – alþingisstaðurinn forni, 1945, bls. 88:

Framan-undir Sleðaási liggur vegur um klif, er heitir Bolaklif, en hvammur skógi vaxinn vestan-við Sleðaás heitir Bolabás, milli Sleðaáss og Fjárhúsamúla, er áður var getið.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá sinni um Hrauntúnsland og afrétti Þingvallahrauns sem rituð var í kringum 1980–1984:

„Norðvestan við hálsinn er all breiður hvammur sem kallast Bolabás (11). Í honum og fjallinu eru 2 gil, það eystra Básgil (12) en hitt ytra Grásteinsgil (13). Þar norðvestar kemur háls sem nær upp í fjallsbrún, Fjárhúsmúli (14).“

Þorsteinn Bjarnason frá Háholti segir svo í ódagsettri örnefnaskrá sinni um afrétt Þingvallasveitar:

„Niður úr fjallinu gengur hæðarrani, er heitir Sleðás (5). Vestan við hana er Bolabás (6), í honum er Gráskeljagil (7). Vestan við gilið er Básöxl (8), þar var býli áður fyrr, er hét Múlastaðir (9). Vestan við Básöxl eru Skógarhólar (10), upp frá þeim er Ármannsbrekka (11) og Ármannsgil (12).“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Bolabás inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni