Enni
Enni er hæð í Þingvallahrauni norðan Hrafnagjár. Þar liggur hraunbreiða til norðvesturs frá Rauðshól við Hrafnagjárenda niður að Flekkuhól. Ofarlega á þessari hraunbreiðu má finna Nyrðri- og Syðri-Svínhóla.
Enni í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni greinir frá Ennis-svæðinu (en greinir ekki frá neinu sérstöku nafni á því) í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Austur af Flekkuhól, norður frá Selstíg, eru tveir stórir, sjerstakir hólar með litlu millibili. Þeir heita Svínhólar (64). Þar er Þingvallahraun hæst og hallar þaðan í allar áttir, nema austur. Er þaðan víðsýni mikið.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Enni inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu. Engin skýring fylgdi örnefninu.