Gildruholt

Google Maps
Ornefni Atlas Gildruholt 0B88

Gildruholt

Gildruholt er skógi vaxið svæði milli Hrafnagjár og Gildruholtsgjár við vestasta hluta Hrafnabjargaháls. Það kemur í eiginlegu framhaldi af Torfu.

Nafnið er dregið af refagildrum og er ýmist haft í eintölu eða fleirtölu. Svæðið við eystri barm Gildruholtsgjár virðist einnig hafa kallast Gildruholt; þar má finna örnefnið Gildruholtshæðir.

Gildruholt í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Nokkurn spöl suðaustur-af Svínhólum eru Gildruholt (69). Þau eru á vesturtakmörkum Hrafnabjargaháls (70). Hallar frá þeim í allar áttir, nema austur, en eru hærri miklu Svínhólum. Þau eru á austurbarmi Gildruholtsgjár (71), sem byrjar í Gjábakkahrauni (72), skammt austur-af Hallstíg, og heitir Bæjargjá (73) þangað til vegurinn liggur yfir hana á móts við Gjábakkabæ; svo fær hún hitt heitið norður-fyrir Gildruholt. Þar hverfur hún á dálitlum kafla, og heita þar Hlíðarflár (74). Bilið milli Hrafnagjár og Gildruholtsgjár heitir einu nafni Torfa (75).

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

32. Gildruholt? Gildruholt er ofan við Gildruholtsgjá. Dregur nafn af refagildrum.

Kristján segir þá svo í örnefnaskrá sinni um Gjábakkaland sem rituð var í kringum 1980–1984:

Þar suðaustur frá [fjárhellum Gjábakka] er skógivaxin hæð, sem nær að Bæjargjá, og skiptir nú gjáin um nafn og verður hrikalegri. Norðan í hellishæðinni eru smá hólar með hellum og kerjum í. Þar fyrir innan hækkar landið, milli gjánna Hrafnagjár og Gildruholtsgjár (25), þar heitir Gildruholt (26), er það all vel gróið og hefur verið skógivaxið [...] Fyrir austan Gildruholtsgjá er landið sneggra og meira mosagróið.

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Gildruholt inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu, en Gildruholtshæðir austan gjárinnar.

Heimildir

Tengd örnefni