Gjáarendar
Gjáarendar (einnig ritaðir Gjáaendar, Gjáendar og Gjárendar) eru hraunfletir við norðaustanvert Þingvallavatn og neðan við Hallinn á Hrafnagjá. Þeir liggja upp að Vatnsviki í vestri, þar sem fjölmargar gjásprungur skerast eftir endilöngum vatnsbakkanum. Sú stærsta nefnist Davíðsgjá. Sunnan Gjáarenda kemur Hallvik og þar úti í vatninu eru Gjáarendahólmar tveir.
Helstu þjóðleiðir til Þingvalla úr austri lágu um Gjáarenda ofan af Hallstíg og Gjábakkastíg á Hrafnagjá. Gamlar götur eru enn sjáanlegar á flötunum. Hraunbali nokkur stendur á ofanverðum Gjáarendum, þar sem landið tekur að hækka til norðurs upp að Hábrún, og heitir Gjáarendahæð.
Gjáarendar í frumheimildum
Bjarni Sæmundsson náttúrufræðingur minnist á Gjáarenda í skýrslu sinni um fiskistofna Þingvallavatns. Segir svo í 1. tölublaði Andvara 1904, bls. 85–86:
„Í víkinni NA. við Arnarfell, þar sem Hrafnagjá liggur út að vatninu, er gjá um 10 faðma djúp uppi við land (Gjáarenda), vottar fyrir henni þvert yfir víkina úti fyrir svo nefndum Drætti og hverfur hún svo undir NA.enda Arnarfells.“
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Frá Gjábakkastíg (12) sunnan vegarins að Vellankötlu (13) (eða Vatnsviki, 14), er að mestu flatt hraun, sem heitir Gjáendar (15); það er allt sundur tætt af gjám, fullum af vatni.“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar þá í spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„6. Endar hvaða gjáa eru Gjáarendar? Gjáarendar eiga upptök sín ofan við Vellankötlu og liggja með fram vatninu í suðvestur og liggja fram í vatnið á breiðu nesi við Hallvik. Stærsta gjáin er Davíðsgjá, full af vatni.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í Þingvallaþönkum sem hann ritaði í kringum 1984–1985:
„Neðri gjábarmurinn frá Hallstíg að Gjábakkastíg og fláinn niður að undirlendinu er kallaður Hallinn og undirlendið vestur að vatninu Gjáarendar.“
Pétur merkti Gjáarenda (með þeim rithætti) inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.