Grasdalahnúkur
Grasdalahnúkur (eða Grasdalahnúkar) er fjallshnúkur sem gengur út úr norðanverðu Ármannsfelli við mörk Gagnheiðar. Tindur hans er um 632 metrar yfir sjávarmáli. Nafnið er dregið af Grasdölum, sem eru tveir lágir dalir í hlíðunum norðan hnúksins.
Grasdalahnúkur í frumheimildum
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá sinni um Hrauntúnsland og afrétti Þingvallahrauns sem rituð var í kringum 1980–1984:
„Nú beygir [Ármannsfell] vestur, norður af því er langur slakki, sem er upphaf að Svartagili. Austan við slakkann eru melar og austan við þá koma 2 dalir Grasdalir (23). Enn beygir fjallið til suðurs, þar er breitt og grösugt gil, sem nær upp í mitt fjall, Ormavallagil (24).“
Þorsteinn Bjarnason frá Háholti segir svo í ódagsettri örnefnaskrá sinni um afrétt Þingvallasveitar:
„Vestan í [Ármannsfelli] er Skál (13). Uppi á fjallinu er Ármannsleiði (14). Vestan undir fjallinu eru Grasdalir (15) og Grasdalahnúkar (16).“