Grasdalir

Google Maps
Ornefni Atlas Grasdalir F348

Grasdalir

Grasdalir eru tveir dalir í hlíðunum norðan Ármannsfells og skammt austan Gagnheiðar. Sunnan þeirra er fjallshöfði sem kallast Grasdalahnúkur og skammt austar er Ormavallagil.

Grasdalir í frumheimildum

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá sinni um Hrauntúnsland og afrétti Þingvallahrauns sem rituð var í kringum 1980–1984:

„Nú beygir [Ármannsfell] vestur, norður af því er langur slakki, sem er upphaf að Svartagili. Austan við slakkann eru melar og austan við þá koma 2 dalir Grasdalir (23). Enn beygir fjallið til suðurs, þar er breitt og grösugt gil, sem nær upp í mitt fjall, Ormavallagil (24).“

Þorsteinn Bjarnason frá Háholti segir svo í ódagsettri örnefnaskrá sinni um afrétt Þingvallasveitar:

„Vestan í [Ármannsfelli] er Skál (13). Uppi á fjallinu er Ármannsleiði (14). Vestan undir fjallinu eru Grasdalir (15) og Grasdalahnúkar (16).“

Heimildir

Tengd örnefni