Grásteinagil

Google Maps
Ornefni Atlas Grasteinsgil 93C9

Grásteinagil

Grásteinagil (eða Grásteinsgil) er gil í suðurhlíðum Ármannsfells. Það er staðsett austan í Fjárhúsamúla og úr því rennur framburður niður í Bolabás.

Grásteina í frumheimildum

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá sinni um Hrauntúnsland og afrétti Þingvallahrauns sem rituð var í kringum 1980–1984:

„Norðvestan við hálsinn er all breiður hvammur sem kallast Bolabás (11). Í honum og fjallinu eru 2 gil, það eystra Básgil (12) en hitt ytra Grásteinsgil (13). Þar norðvestar kemur háls sem nær upp í fjallsbrún, Fjárhúsmúli (14).“

Þorsteinn Bjarnason frá Háholti segir svo í ódagsettri örnefnaskrá sinni um afrétt Þingvallasveitar:

„Niður úr fjallinu gengur hæðarrani, er heitir Sleðás (5). Vestan við hana er Bolabás (6), í honum er Gráskeljagil (7). Vestan við gilið er Básöxl (8), þar var býli áður fyrr, er hét Múlastaðir (9).“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Grásteinagil inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni