Hábrúnarklettur

Google Maps
Ornefni Atlas Habrunarklettur 7293

Hábrúnarklettur

Hábrúnarklettur er lágur hraunhóll á einum efsta hluta Hábrúnar, upp við norðurenda Litlugjár

Hábrúnarklettur í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Austur frá Klukkuhólum, uppi á Brúninni, þar sem hún er hæst, er Hábrúnarklettur (42); er það einnig grjóthóll og ekki stór. Sunnan og vestan í Brún er skógur þjettur og hraunið grösugt, svo að þar sjest valla á stein eða flag, nema þar, sem einstakir stórir grjóthólar eru, þrátt fyrir, að þar var allt af mest áníðslan með fjárbeit og skógarhöggi. Frá Hábrúnarkletti liggur gjá, sem víða er að eins smá-holur, suður hjá Litlu-gjáar-hól og niður að Vellankötlu; heitir hún Litla-gjá (43) og var hinn mesti háski fjenaði á vetrum, er snjóar voru, og unglömbum á vorin.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Hábrúnarklett inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni