Hallvik
Hallvik er vik í norðausturhorni Þingvallavatns, sunnan Gjáarenda. Nafnið er dregið af lægri barmi Hrafnagjár, sem heitir Hallur og gengur þar niður að vatnsbakkanum. Einn ónefndur hólmi er innst í vikinu nálægt bílaútskoti frá Vallavegi og skammt vestar eru tveir aðrir hólmar sem kallast Gjáarendahólmar.
Sunnan Hallviks er Ólafsdráttur sem er mikilvæg hrygningarstöð kuðungableikju og gildir veiðibann þar sem og í Hallviki síðsumars; er þá miðað við svæðið milli Gjáarendahólma og Einbúa á Arnarfelli. Veiðimörk Skógarkots voru áður fyrr miðuð við Hallvik en Þingvallakirkja átti veiðiréttinn í Ólafsdrætti, sem var á tímabili leigður út til Gjábakkabænda. Gengu þeir til veiða um Veiðistíg á Hrafnagjá og niður í Hallvik.
Annað örnefni – sem heitir óumdeilanlega Hallvík – er að finna í norðvestanverðu Þingvallavatni upp við Hallinn á Almannagjá.
Hallvik í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Hallstígur (7) er syðst á Hrafnagjá, skammt fyrir norðan Arnarfellsenda (8). Þaðan og inn í Hallvík (9) nær vatnið alveg að hallanum á vestari gjárbarminum, og er sá kafli nefndur Hallur (10), og eiginlega alla leið inn að Klukkustíg (11), meðan gjábarmarnir eru hærri en hraunið. [...] Upp-af Hallviki (24) er Veiðistígur (25) á Hrafnagjá.“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar þá í spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„4. Hvar og hvernig er Hallvík? [Hér var „í“-i breytt í „i“ með tússpenna.] Hallvik, við sveitamennirnir könnumst ekki við annað nafn. Hallurinn er neðan við Hrafnagjá, frá Hallstíg að Gjábakkastíg, en þaðan að Klukkustíg voru brekkurnar undir vestari barmi Hrafnagjár kallaðar Rif. Þetta er svæðið sem Þingvallanefnd lét gróðursetja í, furu og barrplöntum árið 1959.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Hallvik [ritháttur: „Hallvik (ekki vík)“] inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.