Innra-Mjóafell

Google Maps
Ornefni Atlas Innra Mjoafell E5a1

Innra-Mjóafell

Innra-Mjóafell (einnig ritað Mjóafell innra) er móbergshryggur í norðausturhorni þjóðgarðsins á Þingvöllum. Það er tæplega þriggja kílómetra langt, rís að jafnaði um 90–100 metra upp úr hraunbreiðunum austan þess og er hæsti punktur þess um 429 metrar yfir sjávarmáli.

Fellið er í nokkurn veginn beinu framhaldi af Fremra-Mjóafelli og eru þau aðskilin af Goðaskarði, þar sem Eyfirðingavegur liggur ofan af hálendinu niður á Hofmannaflöt. Vestan Innra-Mjóafells er Lágafell og þröngt dalverpi á milli sem heitir Klauf. Innra-Mjóafell rennur saman við Lágafell er innar dregur og heitir þá Gatfell (um 531 m.y.s.).

Engin örnefni hafa varðveist á fellinu sjálfu, en örnefnið Skógarkotstjörn er skammt austan við mitt fellið og annað nafn, Vatnsból, sunnan þess við Eyfirðingaveg. Ónefnd gata liggur eftir endilöngum rótum fellsins að austanverðu.

Innra-Mjóafell í helstu heimildum

Matthías Þórðarson þjóðminjavörður segir svo í riti sínu Þingvöllur – alþingisstaðurinn forni, 1945, bls. 71–72:

„Austan-við Ármannsfell er Lágafell, en í milli er mjór hryggur. [...] Fyrir sunnan hrygginn er víður völlur, sem heitir Hofmannaflöt. [...] Austan-við Hofmannaflöt er lítið og ílangt fell, sem heitir Mjóafjall eða Mjóafell (fremra). Myndast þannig víð skál, með opi að sunnan, og er sem stórfellt útileikhús. Er hér ákjósanlegur staður til rúmfrekra íþróttasýninga, svo sem alls konar kappaksturs og kapphlaupa. — Norðan-við Mjóafell (fremra) er mjótt skarð, sem heitir Goðaskarð. Verður þar í kriki inni fyrir annar grasvöllur og heitir Byskupsflöt. Eyfirðingavegur hinn gamli liggur um skarðið. — Áfast við Lágafell að austan er Gagnfell [nmgr: „Nú nefnt Gatfell, en það er latmæli.“] , innan-við Goðaskarð; nefnist útsuðurendi þess nú stundum Mjóafell innra [nmgr. „Í fleirtölu eru þau venjulega nefnd Mjóufjöll [...]“] Eru fell þessi öll í sömu stefnu, eftir landslagsáttunum, samhliða Tindaskaga, en 4½ km. breitt flatlendi, hraunbreiða, er í milli.“

Þorsteinn Bjarnason frá Háholti segir svo í ódagsettri örnefnaskrá sinni um afrétt Þingvallasveitar:

„Inn af Hofmannaflöt er Fremra-Mjóafjall (24) og Innra-Mjóafjall (25). Norðurendi Fremra-Mjóafells heitir Gatfell (26). Milli fjallanna er Goðaskarð (27).“

Guðmann Ólafsson, bóndi á Skálabrekku, segir svo í athugasemdum sínum við örnefnaskrá Þorsteins Bjarnasonar árið 1982:

„Fremra-Mjóafjall (24) og Innra-Mjóafjall (28) hefur Guðmann aðeins heyrt nefnd Fremra-Mjóafell (59) og Innra-Mjóafell (60). Lágafell (61), með kjarri vöxnum brekkum að sunnan, er inn af (norður af, upp af) Hofmannaflöt. Fell eru yfirleitt ekki mjög stór.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá sinni um Hrauntúnsland og afrétti Þingvallahrauns sem rituð var í kringum 1980–1984:

„Í suður frá Hofmannaflöt er frekar lítið fjall, Fremra- Mjóafell (31). Í austur frá Hofmannaflöt er skarð og í gegnum þar var farið af Austurlandi, um Biskupsflöt. Í suður tekur við Goðaskarð (32) en í norðaustur af því er langt en lágt fjall Innra-Mjóafell (33). Inn með því að sunnan lá vegurinn í austur að Söðulhólastíg (34), sem er í austur frá Söðulhólum. Inn af Mjóafelli og tengt því er Gatfell (35), en í vestur frá fellinu og í norðaustur frá Hofmannaflöt er lágt en allgróið fjall Lágafell (36). Inn og austur af því er talið að væri Bláskógaheiði (37). Á þessu landi er lágur sauðgróður og þegar lengra dregur í norðvestur eru brunasandar, allt að Skjaldbreið.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í Þingvallaþönkum sem hann ritaði í kringum 1984–1985:

„Goðaskarð sker Mjóufellin algjörlega í sundur, framhald af Mjóafellsgjá tengir fellsendana saman í skarðinu. (Á efri gjábarminum sézt garðhleðsla, sem hefur verið varnargarður fyrir Biskupsflötina, sem er á milli Goðaskarðs og Lágafells. Biskupsflöt var mjög góður slægjublettur frá Hrauntúni, sem auðveldara var að verja fyrir stórgripum en Hofmannaflöt.) Við norðurenda Gatfells kemur gjáin aftur í ljós en hverfur með öllu inn á móts við Sandgíg.“

„Jarðabók Árna og Páls telur, að EIRÍKSSTAÐIR hafi verið miðsvæðis á Skjaldbreiðarhrauni, mitt á milli Skjaldbreiðar og Mjóufjalla og eiga þá við Gatfell, sem er innsti hluti Innra-Mjóafells og þar tengt Lágafelli. Gatfell er hæst og innst þessa fjallaklasa og ber nafn sitt af gati, sem er á kletti upp í fellinu og sézt vel, þegar farið er með því að austan.“

Pétur merkti Innra-Mjóafell inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni