Kriki

Kriki er örnefni við rætur Ármannsfells, fast upp við austanverðan Sleðaás. Akvegur og alfaraleiðir liggja um Krika og sunnan hans er örnefnið Sandskeið. Fjallshlíðarnar eru hér vaxnar þéttu skógarkjarri.

Kriki í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Frá Sláttubrekku eru ekki örnefni í sjálfu Ármannsfelli á þessu svæði, en Stóra-gil (195b) er upp af Lambagjárhrauni og Litla-gil (196) upp af Sandskeiðum, og Kriki (197) þar, sem Sleðaás (178) gengur fram úr fjallinu.“

„Vestan Krika gengur Sleðaás suðvestur úr fjallinu. Kriki (200) er allur þjettum skógi vaxinn og er einn með fegurstu blettum í Ármannsfelli.“

Matthías Þórðarson þjóðminjavörður segir svo í riti sínu Þingvöllur – alþingisstaðurinn forni, 1945, bls. 87:

„Spöl vestar [frá Víðivöllum] gengur fram Sleðaás suður úr fjallinu, en krókurinn austan-við hann nefnist nú að eins Kriki.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá sinni um Hrauntúnsland og afrétti Þingvallahrauns sem rituð var í kringum 1980–1984:

„Aðeins vestar upp frá Víðivöllum er breitt og nokkuð djúpt gil Stóragil (7), skammt vestar er Litlagil (8). Þar er fjallið skógivaxið og nokkuð grösugt, kemur þar aðeins beygja á fjallið, norðvestur að löngum hálsi sem heitir Sleðás (9). Austan við ásinn kallast svæðið Kriki (10).“

Þorsteinn Bjarnason frá Háholti segir svo í ódagsettri örnefnaskrá sinni um afrétt Þingvallasveitar:

„Við norðurenda Þingvallasveitar er hátt fjall, sem heitir Ármannsfell (1), í því eru þessi örnefni: Framan í fjallinu eru Stóragil (2) og Litlagil (3), þar er og brekka, er heitir Kriki (4).“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Krika inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni