Litlagil
Litlagil er gil í suðurhlíðum Ármannsfells, skammt frá Stóragili. Nokkurrar óvissu gætir um nákvæma staðsetningu Litlagils í fellinu, því heimildamenn hafa bæði staðsett það austan og vestan Stóragils. Vestari staðsetningin er þó oftar nefnd og er örnefnið því hér ákvarðað við gildrag skammt austan Sleðaáss, rétt hjá örnefninu Krika. Gilið er myndað af leysingavatni – líkt og flest eða öll gil í fellinu – og hefur framburður úr því skolast niður á hraunflatirnar þar fyrir neðan og heitir þar Sandskeið.
Litlagil í frumheimildum
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá sinni um Hrauntúnsland og afrétti Þingvallahrauns sem rituð var í kringum 1980–1984:
„Aðeins vestar upp frá Víðivöllum er breitt og nokkuð djúpt gil Stóragil (7), skammt vestar er Litlagil (8). Þar er fjallið skógivaxið og nokkuð grösugt, kemur þar aðeins beygja á fjallið, norðvestur að löngum hálsi sem heitir Sleðás (9).“
Þorsteinn Bjarnason frá Háholti segir svo í ódagsettri örnefnaskrá sinni um afrétt Þingvallasveitar:
„Við norðurenda Þingvallasveitar er hátt fjall, sem heitir Ármannsfell (1), í því eru þessi örnefni: Framan í fjallinu eru Stóragil (2) og Litlagil (3), þar er og brekka, er heitir Kriki (4).“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Litlagil inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar tæpum kílómetra austar, upp af Víðivöllum (64.30465,-21.0216).