Nyrðri-Svínhóll
Nyrðri-Svínhóll er annar af tveimur Svínhólum í Þingvallahrauni. Þeir eru skammt norðan Hrafnagjár á hæð sem kallast Enni. Nyrðri-Svínhóll er ögn ofar í landinu en Syðri-Svínhóll og virðist því stærri, þótt báðir séu þeir um 20 metra háir. Efst á honum trónir grjóthlaðin varða.
Nyrðri-Svínhóll í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Austur af Flekkuhól, norður frá Selstíg, eru tveir stórir, sjerstakir hólar með litlu millibili. Þeir heita Svínhólar (64). Þar er Þingvallahraun hæst og hallar þaðan í allar áttir, nema austur. Er þaðan víðsýni mikið. Suðaustur af Svínhólum, norðaustur af Hrafnagjárenda (65), er allstór hóll, sem Rauðhóll (66) heitir. Fyrir norðan Svínhóla kemur Hrafnagjá aftur í ljós, þó miklu sje hún minni en að sunnanverðu, og heitir nú Gaphæðagjá (67), og í Innri-Gapahæð (68) hverfur hún alveg.“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„32. Er vitað um tilefni nafnanna Svínhólar (eru þeir grónir)? Svínhólar, um nafngift ekkert vitað. Þeir eru nokkuð háir strýtumyndaðir. Mikill skógur utan í þeim.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Nyrðri-Svínhól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.