Ormavallagil

Google Maps
Ornefni Atlas Ormavallagil 632B

Ormavallagil

Ormavallagil er gil í hlíðunum norður af Ármannsfelli, skammt austan Grasdalahnúks. Gilið liggur niður í mikinn og langan dal er fylgir landreksstefnunni. Stór og mikill leysingafarvegur rennur úr gilinu eftir dalnum niður á auðnirnar norðan Sandkluftavatns, er meinast hafa heitið einu nafni Ormavellir á fyrri tímum.

Ormavallagil í frumheimildum

Friðrik Björnsson skipstjóri segir svo um Ormavallagil í grein sinni Bláskógaheiði sem kom upphaflega út 1953:

„Þá er það Ormavallagil (27). Satt að segja man ég ekkert eftir þessu örnefni frá fyrri kynnum mínum af þessum slóðum, held jafnvel að það kunni að vera nýsmíði frá síðari árum, en vil þó ekki fullyrða, að svo sé. En víst er um það, að aldrei hefir neitt gil verið í sambandi við Ormavelli, hvorki að þeim eða frá, svo að af þeim getur nafnið ekki verið dregið, enda er staðsetning nafnsins í kortinu svo fjarri Ormavöllum, að þar getur ekkert samband verið á milli. Staðsetning nafnsins hefir einnig verið á reiki í útgáfum kortsins, sem bendir til að það eigi þar raunverulega engan fastan verustað.

Í áðurnefndu korti frá 1932, hefir því þannig verið komið fyrir samhliða Tröllhálsgili (28) í hæðunum vestur af Tröllhálsi, en í síðustu útgáfu kortsins hefir það verið flutt suður í hlíðar Ármannsfells, við norðurenda Sandvatns og sett þar hjá næstum láréttum gilskorningi eða klettasprungu í 425 metra hæð. Þar sem staðsetning þess er svo mjög á reiki og að því er virðist í fullri óvissu, þá held ég að það ætti að lofa því að hverfa úr kortinu fyrir fullt og allt eða þá að staðsetja það í Lágafelli, upp af hinum fornu Ormavöllum, því einungis þar getur nafnið haft tilverurétt.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá sinni um Hrauntúnsland og afrétti Þingvallahrauns sem rituð var í kringum 1980–1984:

„Nú beygir [Ármannsfell] vestur, norður af því er langur slakki, sem er upphaf að Svartagili. Austan við slakkann eru melar og austan við þá koma 2 dalir Grasdalir (23). Enn beygir fjallið til suðurs, þar er breitt og grösugt gil, sem nær upp í mitt fjall, Ormavallagil (24). Sunnan við gilið eru melöldur all breiðar og ná þær suður að vatni sem heitir Sandvatn (25), en hlíðarnar heita Sandvatnshlíðar (26), all grónar, er þar oft gott krækiberjaland.“

Þorsteinn Bjarnason frá Háholti segir svo í ódagsettri örnefnaskrá sinni um afrétt Þingvallasveitar:

„Vestan í [Ármannsfelli] er Skál (13). Uppi á fjallinu er Ármannsleiði (14). Vestan undir fjallinu eru Grasdalir (15) og Grasdalahnúkar (16). Norðan í fjallinu er Ormavallagil (17) og Ormavellir (18). Í norðaustur frá Ormavöllum eru Sandvatnshlíðar (19), hjá þeim er Sandklettavatn (20).“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Ormavallagil inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni

  1. Ármannsfell
  2. Ormavellir (utan þjóðgarðsmarka)