Sandvatnshlíðar

Google Maps
Ornefni Atlas Sandvatnshlidar E088

Sandvatnshlíðar

Sandvatnshlíðar eru hlíðar vestan Sandkluftavatns. Þær ganga úr norðanverðu Ármannsfelli og eru sérstakar fyrir þær sakir að þær varðveita upphaflegt nafn vatnsins, sem áður hét Sandvatn. Dálitlar gróðurtorfur eru í hlíðunum næst vatninu.

Sandvatnshlíðar í frumheimildum

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá sinni um Hrauntúnsland og afrétti Þingvallahrauns sem rituð var í kringum 1980–1984:

„Enn beygir [Ármannsfell] til suðurs, þar er breitt og grösugt gil, sem nær upp í mitt fjall, Ormavallagil (24). Sunnan við gilið eru melöldur all breiðar og ná þær suður að vatni sem heitir Sandvatn (25), en hlíðarnar heita Sandvatnshlíðar (26), all grónar, er þar oft gott krækiberjaland.“

Þorsteinn Bjarnason frá Háholti segir svo í ódagsettri örnefnaskrá sinni um afrétt Þingvallasveitar:

„Norðan í [Ármannsfelli] er Ormavallagil (17) og Ormavellir (18). Í norðaustur frá Ormavöllum eru Sandvatnshlíðar (19), hjá þeim er Sandklettavatn (20).“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Sandvatnshlíðar inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni