Sigurðarselsbrekka

Google Maps
Ornefni Atlas Sigurdarselsbrekka 78D7

Sigurðarselsbrekka

Sigurðarselsbrekka er brekka í Sigurðarseli. Hún er staðsett við vestari barm Hrafnagjár, skammt fyrir innan Klukkustíg.

Sigurðarselsbrekka í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Eins og áður er sagt, heitir Klukkustígur þar, sem hverfur hallinn á vestri barmi Hrafnagjár. [...] Þar fyrir norðan verður austurbarmurinn hár á dálitlum kafla, en vesturbarmurinn nær því jafn hrauninu, enda hækkar það þar á ný og hallar mót suðvestri; heitir sá halli Sigurðarsel (44). Sunnan í því er stór og falleg brekka, sem heitir Sigurðarselsbrekka (45); suður frá henni, vestur af Klukkustíg, er stór hóll, sem heitir Klukkustígshóll (46).“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Sigurðarselsbrekku inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni