Skál (Ármannsfell)

Google Maps
Ornefni Atlas Skal 3F2c

Skál

Skál er stór, hringmynduð hvilft í efstu hlíðum Ármannsfells að vestanverðu. Hún er afmörkuð af lágum hálsi í vestri; á honum er Stórhóll og handan hans er Svartagil. Skál hallar til suðvesturs og úr henni liggja tvö stór gil sem eru aðskilin af Bæjarfelli. Hið vestara kallast Klömbrugil en hið eystra Ármannsgil og rennur mikill framburður úr þeim í leysingum.

Annað örnefni með sama nafni er að finna í Kárastaðalandi.

Skál í frumheimildum

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá sinni um Hrauntúnsland og afrétti Þingvallahrauns sem rituð var í kringum 1980–1984:

„Norður frá [Biskupsbrekkum] er langur en mjór dalur Botnadalur (20). Upp af honum í fjallinu er all breiður hvammur sem heitir Skál (21). Norðan við skálina kemur mjór háls sem er undanfari gils sem heitir Svartagil (22).“

Þorsteinn Bjarnason frá Háholti segir svo í ódagsettri örnefnaskrá sinni um afrétt Þingvallasveitar:

„Vestan við Básöxl eru Skógarhólar (10), upp frá þeim er Ármannsbrekka (11) og Ármannsgil (12). Vestan í fjallinu er Skál (13). Uppi á fjallinu er Ármannsleiði (14).“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Skál inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni

  1. Ármannsfell
  2. Ármannsgil
  3. Kaplagil
  4. Stórhöfði