Böðvarshóll
Böðvarshóll er stór, sprunginn hraunhóll austan Vellankötlu. Hann stendur þétt upp við veginn sem liggur frá Vatnsviki að Gjábakkastíg um sunnanverða Brún en sést nú varla vegna barrtrjáa sem voru gróðursett umhverfis hann á miðri 20. öld. Vestan Böðvarshóls eru fjölmargar sprungur sem koma í framhaldi af Gjáarendum og frá hólnum liggur ónefndur götuslóði að Klukkustíg. Nyrðri hluti hans hefur verið stikaður frá Klukkustíg að Furuskógi.
Samkvæmt Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns voru munnmæli um forna byggð við hólinn, sem hafi verið kennd við einhvern Böðvar. Annar maður að nafni Sæfinnur hafi síðan dvalið við hólinn í kringum 1680 en dáið þar, að því er virðist í mikilli fátækt, eftir um hálft ár. Hvorki hefur tekist að finna aðsetur Sæfinns né ból Böðvars, að því gefnu að það hafi yfir höfuð verið til. Aftur á móti má finna nýlegri fjárhúsatóft frá Vatnskoti sunnan við hólinn og hafa barrtré verið fjarlægð af henni.
Böðvarshóll í frumheimildum
Böðvarshóls er getið í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá 1711 (útg. 1981, bls. 362–363):
„Böðvarshóll heitir eitt örnefni í skóginum allskamt frá Vellankötlu, þar hafa menn heyrt að bygð hafi verið fyrir allra þeirra minni, sem nú lifa, og hafi býlið tekið nafn af Böðvari þeim, sem það skal fyrst hafa uppbygt. Lá það þar eftir lánga tíma í eyði, og var síðan bygt, ef svo skal kalla, um hálft ár, og er nú síðan um 30 ár. Síðan hefur þetta býli í auðn verið, og vita menn ekkert þar um framar að segja hverki um landskuld sje leigukúgildi. Sæfinnur, sem þar bjó þetta hálfa ár, hafði þar enga kú og dó þar á þessu ári.“
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Skammt austur frá Vellankötlu er stór grjóthóll, sem heitir Böðvarshóll (28). Þar hjá er fjárhústóft, sem Þorleifur Ólafsson í Vatnskoti hlóð, en varð aldrei notuð.“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„Böðvarshóll? Ef farinn er vegurinn gamli fram hjá Vellankötlu að Gjábakka, kemur fyrst allstór klofinn hóll en um heitið eru engin svör.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Böðvarshól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.