Fjárhúsbrekkur
Fjárhúsbrekkur eru brekkur fyrir ofan Vellankötlu. Líklega á örnefnið við svæði í neðsta hluta Brúnar nálægt Litlugjá. Ekki er tilgreint hvaða fjárhús brekkurnar eru kenndar við en gömul fjárhúsatóft er skammt frá þeim undir Böðvarshóli. Þá er Nýi-Stekkur skammt norðvestar.
Fjárhúsbrekkur í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Sunnan í hallanum upp-af Vellankötlu heita Fjárhúsbrekkur (30), en þar sem brúnin er fullhækkuð við Litlu-gjá (31), er hóll einn, sem heitir Litlu-gjáar-hóll (32).“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
[14. Er vitað um tilefni nafnsins Fjárhúsbrekkur?] „(Fjárhúsbrekkur, ekki til)“
Björn Th. Björnsson listfræðingur segir svo í bók sinni Þingvellir – staðir og leiðir (2. útg., 1987), bls. 103:
„Upp af Vatnsvikinu, eða betur sagt upp af Vellankötu, innst og austast í vikinu, hækkar landið með talsverðum bratta og miklum gróðri. Í örnefnaskrá sinni kallar Ásgeir Jónasson brekkur þessar Fjárhúsbrekkur, en vestanvert upp þær fikrar sig Litlagjá, hverfur öðru hverju, en opnast sífellt á ný, og oft með hyldjúpum glufum.“
Heimildir
Björn Th. Björnsson. (1987). Þingvellir – staðir og leiðir (2. útg.). Bókaútgáfa Menningarsjóðs.