Fjósagjá

Google Maps

Fjósagjá er vatnsfyllt gjásprunga, um 150 metra löng, sem takmarkar tún Þingvalla í austri. Gjáin kemur í ljós í leirunni skammt frá vatnsbakka Þingvallavatns og sker sig síðan í gegnum vesturenda Silfruhóls. Þar liggur núverandi akvegur yfir gjána. Þaðan heldur hún áfram og hverfur inn í Dagmálahól, þar sem gjáin kemur úr hólnum úr norðri kallast hún Túngjá. Sunnan Dagmálahóls heitir Fjósaklif á gjánni, þar var áður brú og heimreið frá Stöðli heim að Þingvallabæ. Brúin var fjarlægð upp úr 2012 vegna fúaskemmda og var ákveðið að reisa ekki nýja brú í hennar stað til að hlífa túninu. Nafnið er væntanlega dregið af fjósi Þingvallabæjar upp við Fjóshól og/eða stöðlinum vestan Fjósagjár, þar sem ær og kýr voru mjólkaðar.

Fjósagjá

Horft inn eftir Fjósagjá frá Valhallarvegi. Túnið vinstra megin við gjána kallast Seiglur. Dagmálahóll er hægra megin við gjána, sem klýfur hann að endilöngu og kallast þar Túngjá. Fjósaklif er á miðri mynd, framan við það er vatnsleiðsla.