Göngustígur
Göngustígur er staður á Bæjargjá þar sem hægt er ganga á milli barma hennar. Stígnum fylgir engin útskýring í örnefnaskrám.
Líkleg staðsetning Göngustígs er beint vestan Lambahellis, þar sem Bæjargjá hliðrast og myndar mjóa jarðbrú milli sprungna, en hugtakið stígur á Þingvallamáli átti almennt við um slíka staði á gjám en ekki leiðir í heild sinni. Frá stígnum liggur djúp og greinileg gata niður hallinn undan vestari barm Bæjargjár og þaðan til norðvesturs að Gjábakkastíg á Hrafnagjá, um svæði sem nefnist Torfa. Gatan liggur hér um bil samhliða Gjábakkavegi, sem er skammt innar í landinu, en vegalengdin milli Gjábakkabæjar og Gjábakkastígs er um 200–300 metrum styttri ef farið er um Göngustíg.
Göngustígur í frumheimildum
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Göngustíg inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar 60 metrum sunnar (64.23560,-21.0322).