Krækjuklettur

Google Maps
Ornefni Atlas Kraekjuklettur 33Ad

Krækjuklettur

Krækjuklettur er örnefni við bakka Þingvallavatns. Kletturinn er sagður vera fyrir neðan Hallinn á Hrafnagjá og framan við Hallvik á því svæði sem jafnan er kallað Ólafsdráttur. Ábúendur á Gjábakka geymdu bát sinn við klettinn og réru þaðan út til silungsveiða.

Getið er um annan klett, Markaklett, á svipuðum slóðum. 

Krækjuklettur í frumheimildum

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir í spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar frá Hrauntúni:

12. Hvar var/er Veiðistígur? Hvert lá hann og hvaðan? Veiðistígur er frá Gjábakka og lá yfir Hrafnagjá, góðan spöl innan við Hallstíg; og niður að vatninu að kletti sem heitir Krækjuklettur, hann gaf skjól fyrir öldunni. Og bátskæna geymd við klettinn.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Krækjuklett inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni