Litla-Hellishæð

Google Maps
Ornefni Atlas Litla Hellishaed 0250

Litla-Hellishæð

Litla-Hellishæð er hóll með vörðubroti vestan Hellishæðar. Norðan hennar er Ketilhöfði og í slakkanum á milli þeirra liggur Hellisgata. Aflöng brekka er sunnan Litlu-Hellishæðar og þar neðst er Þorkelsklettur.

Litla-Hellishæð í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Lægð lítil er við vesturenda Hellishæðar; fyrir vestan hana er Litla-Hellishæð (50), dálítill hóll með vörðubroti; sunnan undir henni, niður á Brún, er klettahóll, sem heitir Þorkelsklettur (51). Norðvestur frá Litlu-Hellishæð er stór, sundurtættur klappahóll, sem heitir Ketilhöfðaklettur (52). Frá Litlu-Hellishæð hallar suðvestur að Viðarklettsskógi og vestur að Höfðum (53), sem eru skógi og grasi vaxnar hæðir og lautir, og ná þær norður að Mosalág, norður að Ketilhöfða (54).“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Litlu-Hellishæð inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni