Litlugjárhóll

Google Maps
Ornefni Atlas Litlugjarholl 4834

Litlugjárhóll

Litlugjárhóll er hóll á Hábrún sem stendur upp við Litlugjá. Hóllinn er merktur við suðurhluta gjárinnar, um 200 metrum ofan Vellankötlu og við norðanverðar rætur hólsins liggur djúp gata yfir stíg á gjánni með stefnu á Klukkustíg.

Önnur staðsetning Litlugjárhóls kæmi til greina 250 metrum innar við austanverðan gjárbarminn. Þar er sprunginn hraunhóll sem kemur heim við örnefnalýsingar.

Litlugjárhóll í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Sunnan í hallanum upp-af Vellankötlu heita Fjárhúsbrekkur (30), en þar sem brúnin er fullhækkuð við Litlu-gjá (31), er hóll einn, sem heitir Litlu-gjáar-hóll (32).“

„Frá Hábrúnarkletti liggur gjá, sem víða er að eins smá-holur, suður hjá Litlu-gjáar-hól og niður að Vellankötlu; heitir hún Litla-gjá (43) og var hinn mesti háski fjenaði á vetrum, er snjóar voru, og unglömbum á vorin.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

15. Hvar og hvernig er Litlagjá? Hvernig er Litlugjáarhóll? Beint í austur frá Vatnsviki framan við Hábrún er aflíðandi brekka, allbreið, skógivaxin. Um hana miðja liggur Litlagjá og nær rétt fyrir og um veginn í Vatnsvik í stefnu norð austur upp á Hábrún. Á henni miðri er stígur yfir gjána og þar fyrir ofan er nokkuð hár og klofinn hóll, Litlugjárhóll.“

Björn Th. Björnsson listfræðingur segir svo í bók sinni Þingvellir – staðir og leiðir (2. útg., 1987), bls. 103 (Litlugjárhóll er merktur miklu norðar í bók Björns, sbr. kort á blaðsíðu 164):

„Upp af Vatnsvikinu, eða betur sagt upp af Vellankötu, innst og austast í vikinu, hækkar landið með talsverðum bratta og miklum gróðri. Í örnefnaskrá sinni kallar Ásgeir Jónasson brekkur þessar Fjárhúsbrekkur, en vestanvert upp þær fikrar sig Litlagjá, hverfur öðru hverju, en opnast sífellt á ný, og oft með hyldjúpum glufum. Efst greinist hún í nokkrar og smærri samhliða gjár eða gjársveim. Var hún fyrrum hinn mesti háski fé á vetrarbeit, enda má enn sjá vörðubrot á gjárbörmunum þar sem fallhættur eru mestar. Víða upp með gjánni er álitlegur skógargróður, og þar sem fullhækkað er á hraunið er allhár hóll, Litlugjárhóll, þaðan sem er hið bezta útsýni yfir hraunið umhverfis og fram á vatn.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Litlugjárhól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni